Fréttir 29 mars
Nýr vefur Vallaskóla
Vallaskóli á Selfossi hefur nú flutt vef sinn yfir til okkar í Endor. Skólinn varð til 1. ágúst 2002 við sameiningu skólanna tveggja á Selfossi, Sólvallaskóla og Sandvíkurskóla. Skólinn er því nýr skóli á gömlum grunni.
Rætur skólans má rekja til skólahalds í Sandvíkurhreppi sem hófst 1907 og var í formi farkennslu.
Heimasíða skólans er á slóðinni http://www.vallaskoli.is.
Upplýsingar um vefinn: Keyrir á WordPress 3.3.1
Vefurinn notast við eftirfarandi viðbætur (þær helstu): Contact Form 7, List Category Posts, Custom Post Widget og Simple Lightbox svo eitthvað sé nefnt.
Þema: Sérhannað af Hvíta húsinu og sérforritað af Endor – Vefþjónustunni.