Shudy.is !
Við vorum rétt í þessu að setja í loftið nýjan vef, shudy.is í samstarfi við Kósk ehf. Shudy.is er vefverslun með skó og verður að segjast að skórnir séu hver öðrum flottari. Í tilefni af því að páskarnir eru í nánd splæsum við í einn málshátt og segjum: Sjón er sögu ríkari – www.shudy.is
Shudy.is er uppsett í WordPress að sjálfsögðu og keyrir á wp e-commerce vefverslunarviðbótinni og tengist sú viðbót greiðslusíðu Valitor. Sú lausn forrituð af okkur sjálfum hér í Endor.
Upplýsingar um vefinn: Keyrir á WordPress 3.3.1
Vefurinn notast við eftirfarandi viðbætur (þær helstu): WP e-Commerce vefverslunarviðbótin, Gold Cart for WP e-Commerce viðbótin sem er auka viðbót ofaná e-commerce viðbótina, Advanced Custom Fields og TinyMCE Advanced svo eitthvað sé nefnt.
Þema: Sérhannað af Heimi Óskarssyni vefhönnuði og sérforritað af Endor – Vefþjónustunni.