Málstefna Skjals

Tungan þjónar manninum en ekki maðurinn tungunni! Stefna Skjals er að senda ávallt frá sér texta á skýru og góðu máli. Hreintungustefna er þó ekki inni á borðinu hjá okkur, heldur virðum við óskir viðskiptavina um málfar og málsnið, sem og sérvisku í stafsetningu, slettur og tískuorð. Alla jafna kappkostum við þó að vanda málfar eins og kostur er og miða við almennar og viðurkenndar reglur um stafsetningu og greinarmerkjasetningu.