Writing Professional English
Skjal er þátttakandi í samstarfsverkefninu Writing Professional English, sem er evrópskt samstarfsverkefni á vegum Leonardo da Vinci-samstarfsáætlunar Evrópusambandsins. Verkefnið miðar að því að bæta kennsluaðferðir og kennsluefni er snertir fræðileg skrif og skýrslugerð á enskri tungu á sviði tækniiðnaðar og rannsókna í Evrópu. Verkefninu er ætlað að auka gæði í útgáfu vísindalegra athugana á sviði t.d. verkfræði, lyfjaframleiðslu, upplýsingatækni og efnafræði. Sérstök áhersla er lögð á skýra og samræmda framsetningu efnis og bætta ritfærni þeirra er stunda rannsóknir eða starfa að útgáfu fræðiefnis á þessum sviðum.
Meðal þess sem verkefnið hefur nú þegar náð að koma til leiðar er útgáfa handbókar um ritun og frágang fræðigreina, skýrslna og greinargerða á sviði raunvísinda. Þá hefur verið þróað kennsluefni sem getur nýst háskólakennurum og nemendum sem stunda kennslu og nám í hagnýtri ensku.
Þjóðríkin sem að verkefninu koma eru fimm: England, Tékkland, Slóvenía, Ísland og Ítalía. Meðal þeirra sem að verkefninu koma eru Leoben-háskóli í Austurríki, Essex-háskóli í Bretlandi, Brno-tækniháskólinn og Vísindaakademían í Tékklandi, Háskólinn í Ljubljana í Slóveníu, Istituto Tecnico Statale ad Ordinamento Speciale á Ítalíu, Chamber of Commerce and Industry í Jura í Frakklandi, auk ýmissa fyrirtækja í þessum löndum.
Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á slóðinni:
www.kj.fme.vutbr.cz/leon2/prod_eng.html