Fagmennska - hraði - áreiðanleiki
Skjal er stærsta þýðingastofa landsins með 18 starfsmenn í fullu starfi, auk þess sem fyrirtækið hefur fjölda innlendra og erlendra verktaka á skrá. Þetta fyrirkomulag gerir Skjali kleift að veita mjög víðtæka þjónustu, sem felur m.a. í sér:
- Mikla breidd:
- Þýðingar og prófarkalestur á 18 tungumálum
- Textagerð á íslensku og ensku
- Stuttan viðbragðstíma – lágmarksbið eftir því að verk hefjist
- Mikla gæðastýringu – góða yfirferð allra texta og vandaðan prófarkalestur
Auk þess að sjá um hina eiginlegu textavinnslu sér Skjal einnig um:
- Skipulagningu verka og áætlanagerð
- Umsjón og verkstýringu verka frá upphafi til enda
- Orðtöku og almenna aðstoð við þýðendur
- Samlestur þýðingar og frumtexta, svo tryggt sé að texti sé vel unninn og hnökralaus
- Prófarkalestur á öllum textum og þýðingum, með tilliti til réttritunar og að texti sé skrifaður á lipru og góðu máli