Skjal - Fyrirmyndarfyrirtæki 2009
Skjal hlaut nýverið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki 2009 í kjölfar könnunar VR um fyrirtæki ársins. Á fjórða hundrað fyrirtækja tók þátt og hlutu 20 efstu þessa viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur.
Könnunin var gerð á meðal starfsfólks fyrirtækjanna og endurspeglar því mat þess á eigin starfsumhverfi, en þeir þættir sem könnunin mældi voru trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd, ánægja og stolt.
Við hjá Skjali erum að sjálfsögðu hreykin af þessari upphefð og munum leggja okkur fram um að vera áfram til fyrirmyndar á sem flestum sviðum.