Orðatalning
Einfalt er að telja orðin með því að nota aðgerðina orðatalning
(word count) í ritvinnsluforritinu Microsoft Word. Aðgerðin er möguleg í öllum útgáfum forritsins. Ef textinn er á öðru formi, t.d. í Microsoft Excel, er einfaldlega hægt að afrita (copy) textann þar og líma (paste) inn í Word-skjal til að telja orðin. Eftir að það hefur verið gert er svo hægt að telja orðin í textanum eins og sýnt er í leiðbeiningunum. Ef textinn er ekki til á tölvutæku formi, t.d. ef um prentaða bók er að ræða, er best að hafa samband við Skjal til að fá ráðleggingar um orðatalningu.
Skref 1: Farið í Tools og veljið þaðan Word Count.
Skref 2: Í línunni Words sjáið þið fjölda orða í textanum.

