Trúnaður við viðskiptavini
Skjal fer með öll gögn sem fyrirtækinu berast sem ýtrasta trúnaðarmál, hvort sem um er að ræða tilvist þeirra eða innihald. Ekki er heldur gefið upp fyrir hverja fyrirtækið hefur unnið eða er að vinna fyrir nema fyrir liggi samþykki viðskiptavinar þess efnis.
Allir starfsmenn Skjals og verktakar hafa undirritað skýra trúnaðarsamninga sem verja hagsmuni fyrirtækisins og viðskiptavina þess.
Skjal heldur utan um öll gögn sem fyrirtækinu berast, bæði frumgögn frá viðskiptavinum sem og unnin skjöl, nema sérstök ósk komi fram um annað.