Textagerð
Til viðbótar við þýðingaþjónustu og prófarkalestur veitir Skjal viðskiptavinum sínum stuðning við að móta og viðhalda markvissri stefnu þegar kemur að upplýsingamiðlun í formi texta. Skjal getur skilað frumsömdum texta á íslensku og ensku, ásamt vandaðri þýðingu á 18 tungumálum, ef því er að skipta.
Hvort sem um er að ræða eitt eða fleiri tungumál býður Skjal alla textaþjónustu á einum stað. Þjónusta á sviði textagerðar felur m.a. í sér ritun fréttatilkynninga eða fréttatengds efnis, markaðs- og kynningarefnis, ritun texta fyrir vefsíður og margt fleira.
Sendu okkur línu eða hringdu í síma 530 7300 til að láta Skjal annast textagerð fyrir þig.