Prófarkalestur
Mikill metnaður er lagður í nákvæman prófarkalestur og samræmt yfirbragð texta sem unninn er hjá Skjali. Allur texti sem þýddur er hjá Skjali er prófarkalesinn af öðrum starfsmanni en þeim er sér um þýðingarvinnuna. Viðskiptavinum gefst einnig kostur á að senda stofunni texta og gögn til yfirlesturs og lagfæringar.
Prófarkalestur felur í sér að allar villur eru leiðréttar, hvort sem um er að ræða innsláttarvillur, stafsetningarvillur, augljósar málvillur eða ranga skiptingu orða á milli lína.
Prófarkalestur felur ekki í sér endurskrif texta.
Smelltu hér til að senda texta í þýðingu eða prófarkalestur.