Allar þýðingar á einum stað
Viðskiptavinir Skjals hagnast á því að velja Skjal sem heildarþjónustuaðila á sviði þýðinga og textavinnu. Hagur viðskiptavina er tvíþættur. Í fyrsta lagi er Skjal öflugasti aðilinn á íslenskum þýðingamarkaði með tilliti til starfsmannafjölda, reynslu og veltu, og getur þar af leiðandi boðið viðskiptavinum sínum upp á mikla breidd í þjónustu og hátt þjónustustig. Í öðru lagi veitir Skjal viðskiptavinum sínum afslátt ef endurtekningar koma fyrir í texta, hvort heldur er innan verks eða á milli verka.
Stærstur hluti af þýðingum Skjals er unninn með þýðingarhugbúnaði. Með hugbúnaðinum býr fyrirtækið til þýðingarminni fyrir viðskiptavini sína ásamt orðalistum sem saman tryggja samræmi milli verka og flýta fyrir þýðingarferlinu, auk þess sem fyrirtækið er líklegra til að geta boðið viðskiptavinum sínum afslátt af verkum.
Notkun þýðingarhugbúnaðar gerir okkur einnig kleift að greina skjöl við móttöku þeirra og byggja tilboðsgerð til viðskiptavina á þeirri niðurstöðu.
Því meiri texta sem við þýðum fyrir viðskiptavin, því meiri svörun fáum við úr þýðingarminni - sem svo aftur skilar sér í lægri kostnaði fyrir viðskiptavininn.
Niðurstaðan er að kostnaður við þýðingarvinnu lækkar til lengri tíma litið, afhendingartími styttist og samræmi milli verka eykst.