Þýðingar

Almennar þýðingar

Til almennra þýðinga teljast þau verkefni sem ekki krefjast sérhæfingar af hálfu þýðandans umfram það að vera reyndur og fær þýðandi. Starfsmenn Skjals hafa mikla reynslu af að kljást við margbreytilega texta og fagna hverri nýrri áskorun.

Tæknilegar þýðingar

Þýðendur okkar hafa mikla reynslu af að miðla tæknilegum texta með einföldum og skýrum hætti og að afla sér þekkingar á fjölbreytilegustu viðfangsefnum. Skjal býr yfir sérhæfingu í þýðingum á m.a. hugbúnaði, handbókum, notkunarleiðbeiningum og vörulýsingum.

Auglýsinga- og kynningarefni

Hvort sem um er að ræða prentað efni eða texta fyrir vefi fyrirtækja og stofnana hefur Skjal sérhæft sig í þýðingu og staðfæringu á hvers kyns auglýsingaefni, svo sem fréttabréfum, bæklingum, blaðagreinum, auglýsingum, vörulistum og textum á vöruumbúðir. Þegar um efni sem ætlað er fyrir heimamarkað er að ræða er áhersla lögð á að laga hugmyndir og markaðssetningu að íslensku umhverfi og markhópum á skapandi hátt.

Löggiltar skjalaþýðingar og viðskiptagögn

Auk löggiltra skjalaþýðinga tryggir Skjal nákvæma úrvinnslu og vandaðan frágang þegar um viðskiptagögn er að ræða. Skjal hefur gríðarmikla reynslu af þýðingum viðskiptasamninga, ársskýrslna, dómsgagna og hvers kyns texta sem ætlaðir eru til notkunar á opinberum vettvangi.

Smelltu hér til að senda texta í þýðingu eða prófarkalestur.